Grænuhlíð
IS EN

Sumarhúsaleiga á Kalastöðum, Hvalfirði

Sumarhúsin eru 2-4 manna (30 fm) og er vandað til frágangs þeirra. Í þeim eru vel búin baðherbergi með góðum sturtuklefa, svefnherbergi með tvíbreiðu rúmmi og fataskáp. Komið er inn í forstofu og þaðan er opið inn í rými með eldhúskrók, borðstofu og stofu með svefnsófa þar sem 2 fullorðnir geta sofið. Úti er heitur pottur, gasgrill og verönd með sólstólum (mót suðri), þar sem hægt er að njóta fagurs útsýnis yfir Hvalfjörðinn. Við höfum lagt mikið upp úr því að bústaðirnir séu vel búnir og þar fari vel um fólk.

Vinsamlega athugið að ekki er leyfilegt að reykja í húsunum.


Fyrir frekari upplýsingar og bókanir: kali@emax.is
Bústaður
Myndir af bústaðinum -  mynd

Lágmarks skjáupplausn til skoðunar er 1024X768 kali@emax.is © Copyright 2006